Spennandi Bikarmót í áhaldafimleikum er nú lokið, þar sem ófá lið kepptust um titilinn.
Í dag fór fram fyrri partur sannkallaðrar Bikarmótsveislu í fimleikum, þar sem bestu félagslið landsins kepptust um Bikarmeistaratitil í frjálsum æfingum. Keppnin var haldin með pompi og prakt eins og síðastliðin þrjú ár í Fjölni, Egilshöll. Keppnin var hörð frá upphafi til enda en að lokum voru það lið 1 frá Gerplu sem stóðu uppi sem sigurvegarar í báðum flokkum.
Þær Hildur Maja Guðmundsdóttir, Thelma Aðalsteinsdóttir, Lilja Katrín Gunnarsdóttir, Rakel Sara Pétursdóttir og Agnes Suto skipuðu Gerplulið 1 kvennamegin og þeir Atli Snær Valgeirsson, Ágúst Ingi Davíðsson, Dagur Kári Ólafsson, Sigurður Ari Stefánsson og Martin Guðmundsson skipuðu Gerplulið 1 karlamegin.
Verðlaunin skiptust svona
Áhaldafimleikar karla
- sæti – Gerpla 1
- sæti – Björk
- sæti – Gerpla 2
Áhaldafimleikar kvenna
- sæti – Gerpla 1
- sæti – Stjarnan
- sæti – Gerpla 2
Veislan heldur áfram á morgun, þar sem keppni hjá meistaraflokkum í hópfimleikum fer fram. Keppnin hefst kl. 13:55 einnig í Fjölni, Egilshöll og mun RÚV sýna frá keppninni í beinni útsendingu.
Fimleikasamband Íslands óskar öllum keppendum, þjálfurum og félögum til hamingju með árangurinn og hlökkum við til næstu móta! Að lokum viljum við þakka Fjölni fyrir frábært mótahald, dómurum og öðrum sjálfboðaliðum fyrir aðstoðina og RÚV fyrir gott samstarf.
👉Úrslit mótsins má finna hér.
📸Myndir verða birtar hér.

