Select Page

Þorgeir Ívarsson, landsliðsþjálfari kvenna hefur tilnefnt eftirfarandi einstaklinga til þátttöku á Norður Evrópumóti, sem haldið verður dagana 23.-25. október í Leicester, Englandi. Keppendur koma frá tveimur félögum – Gerplu og Stjörnunni.

Kvennalandslið Íslands skipa:

  • Hekla Hákonardóttir – Gerpla
  • Katla María Geirsdóttir – Stjarnan
  • Kristjana Ólafsdóttir – Gerpla
  • Nanna Guðmundsdóttir – Stjarnan
  • Rakel Sara Pétursdóttir – Gerpla
  • Þóranna Sveinsdóttir – Stjarnan

Varamaður er Eva Ívarsdóttir – Stjarnan

Fimleikasamband Íslands óskar keppendum, þjálfurum og félögum innilega til hamingju með landsliðssætið.