Select Page

Í gær voru undirritaðir samningar vegna einstaklingsstyrkja frá Ólympíusamhjálpinni fyrir Ólympíuleikana í Los Angeles árið 2028.

Við erum ákaflega stolt af því að á lista styrkhafa er okkar kona Thelma Aðalsteinsdóttir, afreksíþróttakona úr Gerplu. Níu íþróttamenn frá sjö sérsamböndum ÍSÍ fá styrk frá Ólympíusamhjálpinni að þessu sinni og er um að ræða mánaðarlegan styrk fyrir hvern styrkþega vegna kostnaðar sem til fellur vegna æfinga og keppni. Tveir íþróttamenn af þessum níu fá 1350 dollara á hverjum mánuði, Snæfríður Sól Jórunnardóttir sundkona og Eygló Fanndal Sturludóttir lyftingakona. Hin sjö fá 900 dollara á mánuði í styrk. Styrktímabil hófst þann 1. september 2025 og stendur fram að leikum, nái styrkþegi að tryggja sér þátttökurétt.

Styrkþegar Ólympíusamhjálparinnar vegna Los Angeles 2028 eru:

Eygló Fanndal Sturludóttir (ólympískar lyftingar)
Snæfríður Sól Jórunnardóttir (sund, skriðsund)
Hákon Þór Svavarsson (skotíþróttir, skeet)
Andri Nikolaysson (skylmingar, höggsverð)
Sindri Hrafn Guðmundsson (frjálsíþróttir, spjótkast)
Erna Sóley Gunnarsdóttir (frjálsíþróttir, kúluvarp)
Thelma Aðalsteinsdóttir (fimleikar, áhaldafimleikar)
Snorri Dagur Einarsson (sund, bringusund)
Leo Speight (taekwondo -68kg)

Fimleikasamband Íslands óskar Thelmu innilega til hamingju með styrkinn, sem mun vonandi koma henni að góðum notum í undirbúning fyrir Ólympíuleikana í Los Angeles 2028.

Ljósmyndir/Hlín Guðmundsdóttir