Select Page

Valgarð Reinhardsson úr Gerplu vann öruggan sigur á Íslandsmeistaramótinu í áhaldafimleikum og var þetta sjötti Íslandsmeistaratitill Valgarðs. Thelma Aðalsteinsdóttir úr Gerplu vann í kvennaflokki og er þetta hennar fyrsti Íslandsmeistaratitill í fjölþraut. Mótið fór fram í Versölum í umsjá Gerplu og var sýnt í beinni útsendingu á RÚV. Myndir frá mótinu munu koma inn á myndasíðu Fimleikasambandsins.

Baráttan var hörð í kvennaflokki en Thelma bar sigur úr býtum og hlaut 47.650 stig. Í öðru sæti var það Gerplu konan Hildur Maja Guðmundsdóttir með 45.683 stig. Þriðja sætið hlaut Agnes Suto með 44.750 stig.

Valgarð fékk 79.131 stig fyrir æfingar sínar en hann hefur sigrað í fjölþraut árin 2015, 2017, 2018, 2019, 2021 (ekkert mót árið 2020 vegna Covid) og svo nú 2022. Í öðru sæti var Jónas Ingi Þórisson úr Gerplu með 74.831 stig. Í þriðja sæti með 73.532 stig var Martin Bjarni Guðmundsson einnig úr Gerplu.

Hér má sjá öll úrslit mótsins.

Karlaflokkur – Valgarð Reinhardsson
Kvennaflokkur – Thelma Aðalsteinsdóttir

Íslandsmeistarar unglinga

Unglingaflokkur karla

  • 1. sæti – Sigurður Ari Stefánsson úr Fjölni með 69.531 stig
  • 2. sæti – Lúkas Ari Ragnarsson úr Björk með 65.499 stig
  • 3. sæti – Ari Freyr Kristinsson úr Björk með 64.299 stig
Unglingaflokkur karla – Sigurður Ari Stefánsson

Unglingaflokkur kvenna

  • 1. sæti – Rakel Sara Pétursdóttir úr Gerplu með 43.833 stig
  • 2. sæti – Ragnheiður Jenný Jóhannsdóttir úr Björk með 43.750 stig
  • 3. sæti – Natalía Dóra S. Rúnarsdóttir úr Björk með 43.133 stig
Unglingaflokkur kvenna – Rakel Sara Pétursdóttir

Úrslit á einstökum á höldum

Á morgun fara fram úrslit á einstökum áhöldum, þar sem 5 hæstu keppendur á hverju áhaldi berjast um Íslandsmeistaratitilinn á áhaldinu. Keppnin hefst kl. 15:20 og hvetjum við alla til að mæta í Versali og sýna okkar fólki stuðning. Mótið er einnig sýnt í beinni útsendingu á RÚV og hefst útsendingin kl. 16:00.

Fimleikasamband Íslands óskar keppendur, þjálfurum og félögum innilega til hamingju með daginn