Rétt í þessu var seinni úrslitadegi á heimsbikarmóti i Tashkent, Úsbekistan að ljúka. Lilja Karín Gunnarsdóttir keppi til úrslita á bæði slá og gólfi, en að auki var hún fyrsti varamaður á tvíslá.
Lilja Katrín byrjaði á slánni, þar sem hún framkvæmdi nánast hnökralausa sláaræfingu, hækkaði hún sig um 0,200 stig frá undanúrslitum og varð aðeins 0.200 stigum frá verðlaunapallinum í dag með 12.250 stig í 4. sæti. Stuttu seinni mætti hún á gólfið, þar sem hún framkvæmdi aftur frábæra æfingu og hækkaði sig frá undanúrslitum, æfingin skilaði henni 11.850 stigum og 6. sætinu.
Lilja Katrín er á mikilli uppsiglingu og hefur hún aftur og aftur verið að sanna sig meðal þeirra allra bestu, eins og hún gerði í dag, næst á dagskrá hjá henni er heimsbikarmót í Koper, Slóveníu í næstu viku. Þau Ágúst Ingi Davíðsson, Dagur Kári Ólafsson, Atlí Snær Valgeirsson, Jónas Ingi Þórisson, Auður Anna Þorbjarnardóttir og Kristjana Ósk Ólafsdóttir taka einnig þátt á heimsbikarmótinu í Koper, en mæta þau ásamt flottu fylgdarliði þangað á þriðjudag.
Fimleikasamband Íslands óskar Lilju Katrínu, þjálfurum og Gerplu innilega til hamingju með árangurinn í dag.
Hægt er að nálgast úrslitin í Elevien appinu og myndir hér.

