Íslandsmótið í áhaldafimleikum fór fram í dag í húsakynnum Ármanns þar sem keppt var til úrslita í fjölþraut karla og kvenna. Keppnin var bæði spennandi og dramatísk og sáust glæsilegar æfingar hjá fremsta fimleikafólki landsins.
Ágúst Ingi Davíðsson tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn í fjölþraut karla í fyrsta sinn á ferlinum með afar harðri og frábærri frammistöðu á öllum áhöldum. Ágúst hefur verið á uppleið undanfarin ár og sýndi í dag að hann er orðinn einn fremsti fimleikamaður landsins.
Mikla athygli vakti einnig endurkoma Martins Bjarna Guðmundssonar, sem sneri aftur til keppni eftir langvarandi meiðsli og hafnaði í 2. sæti. Atli Snær Valgeirsson, Íslandsmeistari síðasta árs, endaði í 3. sæti eftir jafna og harða keppni.
Dagurinn tók óvænta stefnu þegar Dagur Kári Ólafsson, sem talinn var líklegur til sigurs, slasaði sig á tvíslá. Þrátt fyrir að reyna að halda áfram og aðlaga æfingar sínar á svifrá var ljóst að hann náði sér ekki á strik og ákvað að hætta keppni.
Valgarð Reinhardsson, margfaldur Íslandsmeistari í fjölþraut, tók ekki þátt í fjölþrautinni að þessu sinni, en verður þó á meðal keppenda í úrslitum á áhöldum á morgun þar sem hann keppir á hringjum.
Í kvennaflokki stóð Thelma Aðalsteinsdóttir uppi sem Íslandsmeistari eftir glæsilega og örugga keppni. Með sigrinum jafnar hún met þeirra Berglindar Pétursdóttur og Sifjar Pálsdóttur yfir fjölda Íslandsmeistaratitla í fjölþraut og styrkir enn stöðu sína meðal fremstu fimleikakvenna landsins. Einungis ein kona hefur unnið Íslandmeistaratitil oftar en þær þrjár og það er hún Thelma Rut Hermannsdóttir. Við býðum því spennt eftir að sjá hvort Thelma Aðalsteins jafni met samnöfnu sinnar á næsta ári. Thelma sýndi enn og aftur hvað í henni býr í gólfæfingum, þar sem tilþrif hennar hafa vakið alþjóðlega athygli og farið í mikla dreifingu á samfélagsmiðlum alþjóðasambandsins og í fréttamiðlum á Íslandi, eftir frammistöðu hennar á World Cup í Kaíró, þar sem hún heillaði áhorfendur með einstöku listfengi.
Lilja Katrín Gunnarsdóttir veitti Thelmu harða keppni og hafnaði í 2. sæti, aðeins 1,134 stigum á eftir henni. Kristjana Ósk Ólafsdóttir tryggði sér 3. sætið, en baráttan um verðlaunasætin var afar jöfn.
Sérstaklega vakti athygli hörð barátta um bronsið þar sem fyrrum Íslandsmeistararnir Agnes Suto (2019) og Nanna Guðmundsdóttir (2021) áttust við. Agnes endaði að lokum í 4. sæti, aðeins 0,177 stigum frá verðlaunasæti, og hefur vakið athygli fyrir sterka endurkomu þar sem hún keppir bæði í áhaldafimleikum og hópfimleikum. Hún sýnir enn og aftur að hún tilheyrir fremstu röð þrátt fyrir að vera 34 ára og æfir ekki alltaf af fullum krafti.
Nanna var einnig í harðri baráttu um verðlaunasæti en varð fyrir því óláni að slasast í gólfæfingum, á síðasta áhaldi sínu, og gat því ekki lokið keppni.
Rakel Sara Pétursdóttir fylgdi fast á eftir og hafnaði í 5. sæti, einungis 0,199 stigum á eftir Agnesi.
Eftir keppnina í fullorðinsflokki fór fram keppni í unglingaflokki þar sem einnig var hart barist um titlana.
Í unglingaflokki kvenna varð Arney Ívarsdóttir Íslandsmeistari með öruggan sigur, en hún var 2,232 stigum á undan næstu keppendum. Magdalena Andradóttir hafnaði í 2. sæti og Elfa María Reynisdóttir í því þriðja.
Í unglingaflokki karla stóð Kári Pálmason uppi sem Íslandsmeistari eftir harða keppni. Þorsteinn Orri Ólafsson varð í 2. sæti, 2,833 stigum á eftir honum, og Kári Hjaltason hafnaði í 3. sæti.
Keppnin í dag undirstrikaði breiddina og styrkinn í íslenskum áhaldafimleikum, þar sem bæði reynslumiklir keppendur og efnilegt ungt fimleikafólk létu ljós sitt skína.
Úrslit á einstökum áhöldum fara fram á morgun og má búast við áframhaldandi spennu þar sem keppendur berjast um Íslandsmeistaratitla á hverju áhaldi.
Fjölmennum á morgun #áframísland