Keppni í áhaldafimleikum karla
Frjálsar æfingar
Hæsta getustig í áhaldafimleikum eru Frjálsar æfingar, þar er keppt eftir reglum alþjóða fimleikasambandsins (code of points). Keppt er í karlaflokki (18 ára og eldri), unglingaflokki (14-17 ára) og drengjaflokki (13 ára og yngri).
Mót: Haustmót, Bikarmót (liðakeppni), Íslandsmót (fjölþraut og einstök áhöld) , GK-meistaramót
1. Þrep
Efsta og erfiðasta þrep Fimleikastigans er 1. þrep sem eru frjálsar æfingar sem styðjast við reglur FIG fyrir unglinga. Engar fyrirfram ákveðnar seríur eru gefnar upp á áhöldum heldur fær fimleikamaður í samráði við þjálfara að setja seríurnar saman. Í þessu þrepi er keppt í einstaklingskeppni í fjölþraut og á einstökum áhöldum, í liðakeppni á Bikarmóti og þeir einstaklingar sem ná þrepi enn þó að lágmarki 10 efstu frá keppnistímabili vinna sér inn rétt til keppni á Íslandsmóti.
Mót: Haustmót, Þrepamót, Bikarmót (liðakeppni), Íslandsmót (fjölþraut og einstök áhöld) og GK-meistaramót
2. Þrep
2. þrep eru skylduæfingar. Þrepið er hannað með það í huga að flestir keppendur geti notað seríurnar sem grunn til að bæta örlítið við svo að seríurnar uppfylli kröfur í keppni í frjálsum æfingum. Í þessum þrepum er keppt í einstaklingskeppni í fjölþraut og á einstökum áhöldum, í liðakeppni á Bikarmóti og þeir einstaklingar sem ná tilskildum stigafjölda og/eða eru í efstu 10 sætunum eftir keppnistímabilið vinna sér inn þátttökurétt á Íslandsmóti.
Mót: Haustmót, Þrepamót, Bikarmót (liðakeppni), Íslandsmót (fjölþraut og einstök áhöld) og GK-meistaramót
3. Þrep
3. þrep eru skylduæfingar. Hér bætast við fleiri æfingar sem hafa gildi í code of points og seríurnar á sumum áhöldunum eru tilbúnar til keppni í frjálsum æfingum ss. á gólfi og stökki. Í þessu þrepi er keppt í einstaklingskeppni í fjölþraut og á einstökum áhöldum, í liðakeppni á Bikarmóti og þeir einstaklingar sem ná tilskildum stigafjölda og/eða eru í efstu 10 sætunum eftir keppnistímabilið vinna sér inn þátttökurétt á Íslandsmóti.
Mót: Haustmót, Þrepamót, Bikarmót (liðakeppni), Íslandsmót (fjölþraut og einstök áhöld) og GK-meistaramót
4.-5. Þrep
4. og 5. þrep eru skylduæfingar. Í þessum þrepum er keppt í einstaklingskeppi og eingöngu í fjölþraut. Þegar iðkandi hefur náð tilskildum stigafjölda er hann verðlaunaður og flyst upp í næsta þrep.
Mót: Þrepamót 1 (sem fram fer á haustönn) Þrepamót 2 og Þrepamót 3 ( sem fram fara á vorönn)
6. Þrep
- þrep eru skylduæfingar ætlaðar til notkunar í stöðumati félaga, á boðs og innanfélagsmótum iðkenda sem eru að taka sín fyrstu skref í greininni.
Mót: Ekki er keppt á mótum FSÍ í þessu þrepi.
Um þrepin
Venjuleg leið í gegnum þrepin er að taka 2 ár í að keppa í hverju þrepi. Fyrra árið fer yfirleitt í að læra nýju æfingarnar, á meðan seinna árið fer í að fínpússa æfingarnar og eiga möguleika á verðlaunum fyrir æfingarnar.
Keppendur fá að keppa á mótum á vegum FSÍ við 9 ára aldur og keppendur í 3.þrepi og ofar mega keppa í frjálsum æfingum samhliða keppni í fimleikastiganum
Keppandi fær þrep viðurkennt þegar ákveðnum stigafjölda í fjölþraut er náð. Með því að fá þrep viðurkennt hefur keppandi formlega lokið þrepinu. Ber honum þá að færast upp um þrep á næsta keppnistímabili. Keppanda er leyfilegt að færa sig upp um þrep á keppnistímabili hafi hann sýnt fram á nægilega góð tök á því þrepi sem hann ætlar að fara úr. Ekki er hægt að færast niður um þrep þegar keppandi hefur einu sinni fært sig upp um þrep og keppt í því á móti á vegum FSÍ.