Select Page

Starfsmenn og verktakar íþróttafélaga og frjálsra félagasamtaka eiga rétt til hlutagreiðslu samhliða minnkuðu starfshlutfalli vegna tímabundins samdráttar í starfsemi vinnuveitanda, samkvæmt frumvarpi sem Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, lagði fram í síðustu viku og var samþykkt á föstudag.

Miðað við það geta starfsmenn íþróttafélaga, þjálfarar og aðrir á launaskrá viðkomandi félags sótt um hlutagreiðslur komi til skerts starfshlutfalls. Gert er ráð fyrir að þær geti numið frá 20-75% skerðingu á móti starfshlutfalli starfsmanna. Komi til skerðingar þarf starfsmaður að semja við yfirmann sinn og sækja að því loknu um greiðslur vegna minna starfshlutfalls.

Jafnframt hefur Alþingi samþykkt lög um tímabundnar greiðslur vegna launa einstaklinga sem sæta sóttkví samkvæmt fyrirmælum heilbrigðisyfirvalda án þess að vera sýktir.

Frumvarpið í stuttu máli:

  • Hlutagreiðslur greiddar samhliða allt að 75% minna starfshlutfalli.
  • Laun frá vinnuveitanda og greiðslu bóta samanlagt geta aldrei numið hærri fjárhæð en 90% af meðaltali heildarlauna launamanns.
  • Miðað er við meðaltal launa síðustu þriggja mánaða áður en launamaður missti starf sitt að hluta.
  • Þak á samanlagðar bætur og laun nema 700.000 krónum.
  • Einstaklingur með 400.000 krónur í launa eða minna á mánuði getur fengið greitt 100% launa sinna.
  • Gildistími frumvarpsins er frá 15. mars 2020 til 31. maí 2020.


Hvernig er umsóknarferlið?

Á vefsíðu Vinnumálastofnunar eru gagnlegar leiðbeiningar og upplýsingar um það hvernig starfsfólk íþróttafélaga
sækir um hlutagreiðslur vegna skerts starfshlutfalls.

  • Félagið þarf að byrja á að semja við starfsfólk sitt um lækkað starfshlutfall.
  • Viðkomandi starfsmaður fer síðan inn á vefsíðu Vinnumálastofnunar. Þar skal smella á upplýsingaboxið „Upplýsingar vegna COVID-19“. Þar undir eru helstu upplýsingar um minnkað starfshlutfall, greiðslur í sóttkví og spurt og og svarað um COVID-19.

Umsóknarformið enn í vinnslu

Vinnumálastofnun leggur nú kapp á að vinna að stafrænni útfærslu fyrir umsókn launamanna og er ekki hægt að sækja um minnkað starfshlutfall á vef Vinnumálastofnunar meðan á þeirri vinnu stendur, en umsóknin verður aðgengileg notendum undir flipanum „mínar síður“ mjög fljótlega.

Launamaður sem þarf að minnka við sig um starfshlutfall mun eingöngu þurfa að skila inn umsókn þar að lútandi til Vinnumálastofnunar. Atvinnurekandi skilar svo inn staðfestingu á breyttu starfshlutfalli og áætlun um mánaðartekjur launamanns. Frekari gögn mun ekki þurfa.

Atvinnurekendur geta enn fremur ekki skilað inn nauðsynlegum staðfestingum frá sér þar sem stafræn lausn er ekki tilbúin. Vinnumálastofnun mun gefa út tilkynningu þegar umsóknargrunnurinn er tilbúinn og einstaklingar sem fara í minnkað starfshlutfall geta sótt um. Allar umsóknir munu gilda afturvirkt frá 15. mars.

Vinnumálastofnun beinir þeim tilmælum til atvinnurekenda að verða sér úti um íslykil eða rafræn skilríki fyrir atvinnurekstur sinn, en öllum gögnum varðandi minnkað starfshlutfall ber að skila inn í gegnum mínar síður hjá Vinnumálastofnun með rafrænu auðkenni. Upplýsingar um hvernig atvinnurekandi getur nálgast Íslykil eða rafræn skilríki fyrir sinn atvinnurekstur má nálgast hér: 


Greiðslur í sóttkví

Unnið er að tæknilegum lausnum vegna greiðslna í sóttkví. Um leið og það ferli skýrist nánar og lausnirnar verða tilbúnar mun Vinnumálastofnun birta tilkynningar þess efnis á vef stofnunarinnar.