Select Page

Fimleikasambandið frestar öllu mótahaldi á meðan samkomubann er í gildi í landinu. Nánari upplýsingar verða gefnar út eins og tilefni er til en Fimleikasambandið mun fylgja tilmælum almannavarna og ÍSÍ í starfi sambandsins. 

FSÍ fundaði nú rétt í þessu með ÍSÍ og öðrum sérsamböndum vegna þeirrar stöðu sem upp er komin vegna kórónaveirunnar og áhrif hennar á samfélagið. Eins og fram hefur komið þá hefur verið sett samkomubann hér á landi frá og með miðnætti 15.mars.

Framkvæmdastjórar ÍSÍ og UMFÍ munu sitja fund kl. 15:00 í dag með Mennta – og menningarmálaráðherra og hefur verið ákveðið að sérsamböndin hittist aftur í höfðustöðvum ÍSÍ kl 16:00 þar sem við verðum upplýst betur um stöðu mála.