Fullorðins fimleikar
Aldrei hætta að leika
Mörg félög bjóða upp á fimleika fyrir fullorðna. Æfingarnar henta öllum, óháð bakgrunni í íþróttum og eru byggðar upp af styrktaræfingum og grunnæfingum í fimleikum. Fullorðinsfimleikar eru fjölbreytt alhliða hreyfing þar sem reynir á styrk, þol og þor í skemmtilegum hópi. Fyrst og fremst er þetta alhliða, skemmtileg og öðruvísi hreyfing.