Select Page

Um þessar mundir er 60 manna hópur frá Selfossi og Gerplu stödd í sólinni í Pistoia, Ítalíu að taka þátt í skemmtilegu fimleikahátíðinni Eurogym.

Hátíðin er haldin annað hvert ár og samanstendur af fimleikasýningum, workshops og að njóta með vinum og öðru fimleikafólki úr heiminum. Fimleikahátíðin er á vegum Evrópska Fimleikasambandsins – Fimleikar fyrir alla. 

Hitinn er aðeins að stríða íslensku hópunum og gerir það ansi krefjandi að bæði hreyfa sig og sýna fimleika í 37 gráðum. Íslensku hóparnir gera gott úr aðstæðunum og hafa verið dugleg að vökva sig bæði að innan sem utan. Í gær tóku íslensku hóparnir þátt í Country Dance Workshop og svo skellti Gerpla sér í Crossfit og Selfoss í körfubolta. Í gær var einnig fyrsti sýningardagurinn en sýndu báðir hóparnir glæsilegar æfingar á stóru sviði í bænum. Í dag hóf Gerpla daginn á körfubolta og seinnipartinn fer fram seinni sýningardagurinn okkar. Á morgun ætla hóparnir að skella sér í vatnsrennibrautagarðinn og njóta svo seinustu daganna á Eurogym. 

Fimleikasambandið hvetur áhugasama um að fylgja hátíðinni á samfélagsmiðlum en þar má sjá brot af því besta sem þessi frábæra fimleikahátíð hefur að bjóða – Eurogym2026