Ýmsar hömlur hafa verið settar á íþróttastarf á höfuðborgarsvæðinu frá 7. – 19. október 2020.
Heilbrigðisráðherra hefur fallist á tillögur sóttvarnalæknis um hertar samkomutakmarkanir á höfuðborgarsvæðinu og taka þær gildi 7. október og vara þær til 19. október.
Með höfuðborgarsvæðinu er átt við Reykjavík, Seltjarnarnesbæ, Mosfellsbæ, Kjósarhrepp, Hafnarfjarðarkaupstað, Garðabæ og Kópavog. Við vekjum þó athygli á því að hlutirnir þróast hratt og er von á frekari útskýringum um einstaka liði reglugerðarinnar síðar. Við vekjum jafnframt sérstaka athygli á reglugerðunum, sem lesa má hér að neðan.
Hertar aðgerðir fela í sér
- Íþróttir innandyra óheimil: Líkamsrækt, íþróttastarf og sambærileg starfsemi sem krefst snertingar eða hætta er á snertingu á milli fólks eða mikilli nálægð, eða þar sem notkun á sameiginlegum búnaði getur haft smithættu í för með sér er óheimil innandyra.
- Nálægðarmörk 2 metrar: Nálægðarmörk verða 2 metrar. Það á einnig við í öllum skólum, að undanskildum börnum fæddum 2005 og síðar.
Börn fædd 2005 og síðar
- Íþrótta- og æskulýðsstarfsemi og tómstundir barna sem eru fædd 2005 og síðar er heimil.
- Keppnisviðburðir: Keppnisviðburðir barna sem fædd eru 2005 og síðar þar sem hætta er á blöndun hópa umfram hefðbundnar æfingar eru óheimilir.
- Nálægðar- og fjöldamörk: Líkt og áður gilda nálægðar- og fjöldamörk ekki um börn fædd 2005 og síðar.
Fylgiskjöl og reglugerðir
- Minnisblað sóttvarnalæknis
- Reglugerð um takmörkun á samkomum vegna farsóttar
- Reglugerð um 1. br. á reglugerð um takmökun á samkomum vegna farsóttar (tekur gildi 7. okt.)
- Reglugerð um takmörkun á skólastarfi vegna farsóttar
- Reglugerð um 1. br. á reglugerð um takmörkun á skólastarfi vegna farsóttar (tekur gildi 7. okt.)