Landslið karla í hópfimleikum
Your Title Goes Here
Day(s)
:
Hour(s)
:
Minute(s)
:
Second(s)
Úrvalshópar og landslið fyrir Evrópumót 2024
Landslið karla/blandaðs liðs
Fimleikasambandið stefnir á að senda tvö lið í fullorðins flokki, kvennalið og annað hvort karlalið eða blandað lið, en ákvörðun um það verður tekin síðar í ferlinu.
Dagskrá úrvalshópa fullorðinna 2023
Maí:
Æfingar með Oliver Bay
Gestakennarinn Oliver Bay verður með æfingar fyrir úrvalshópa. Oliver er landsliðsþjálfari power tumbling í Danmörku. Oliver vinnur í Vejstrup efterskole þar sem hann þjálfar einnig hópfimleika. Oliver er menntaður styrktarþjálfari og er með sitt eigið fyrirtæki, en nánari upplýsingar um hann er að finna hér: Oliver Bay.
Tímasetning: 17. maí – 20. maí (mið – lau).
Innihald æfinga: Aftur á bak stökk á dýnu, styrktaræfingar og fleira í tengslum við aftur á bak dýnustökk.
Dagskrá: Ath. iðkendur eru beðnir um að mæta 30 mínútum áður en æfingarnar hefjast:
- Hópur 1 mætir á eftirfarandi æfingar:
- 17. maí (mið), kl. 19:00-21:00 í Stjörnunni.
- 19. maí (fös), kl. 18:00-20:00 í Gerplu Vatnsenda.
- Hópur 2 mætir á eftirfarandi æfingar:
- 18. maí (fim), kl. 17:30-19:30 í Fjölni.
- 20. maí (lau), kl. 15:30-17:30 í fimleikahúsinu á Akranesi.
Endurmenntun FSÍ: Æfingarnar verða líka hluti af endurmenntun á vegum FSÍ og verða því fleiri þjálfarar sem mæta á æfingarnar til að fylgjast með. Auk þess verða námskeið í hádeginu og í bland við æfingar á kvöldin alla dagana. Öllum iðkendum er boðið að sitja fyrirlestrana og eru þeir hvattir til þess. Skráning verður send út samhliða nánari dagskrá.
Lágmarkskröfur fyrir iðkendur:
Iðkendur þurfa að uppfylla lágmarkskröfur til að geta orðið hluti af úrvalshópi. Tilnefna þarf iðkendur sem uppfylla lágmarkskröfur og landsliðsþjálfarar velja svo úrvalshóp sem tilkynntur verður á heimasíðu sambandsins.
Myndbönd af mómentamarkmiðum og tillögum að undirbúningsæfingum:
Skráning/tilnefning á æfinguna:
- Iðkendur/þjálfarar þurfa að senda myndbönd og tilnefna iðkendur á æfingarnar hér. Skráning er þó einungis tilnefning. Yfirþjálfarar landsliða velja iðkendur úr tilnefningunum og mynda úr þeim úrvalshóp. Úrvalshópur verður tilkynntur á heimasíðu sambandsins og upplýsingar einnig sendar á félögin. Úrvalshóp er boðið að mæta á æfingarnar með Oliver.
- Taka þarf upp öll móment sem koma fram í lágmarkskröfum og senda í einu myndbandi á hrefnahakonar@gmail.com. Skýra á myndbandið með fullu nafni iðkanda og félagi.
- Sjá dæmi: Íris Mist Magnúsdóttir_Fimleikasambandið.
- Senda þarf inn myndbönd og tilnefna iðkendur á æfinguna, fyrir 23. apríl (sun).
- Tilkynning um hverjir eru í úrvalshóp og þ.a.l. boðnir á æfingarnar, kemur á heimasíðu sambandsins og verður send á félögin 2. maí.
Ekki þarf að senda myndbönd af stökkum heldur einungis gólfmómentunum. Ath. við biðjum þjálfara og iðkendur þó vinsamlega að virða stökklágmörkin. GETA ÞARF ÆFINGARNAR ÁN MÓTTÖKU Í KEPPNISHÆÐ og það þarf að geta þær með stöðugum hætti núna, ekki er nóg að hafa getað þær áður. Það er mikilvægt að virða lágmörkin, þar sem það er ósanngjarnt fyrir iðkendur að sumir geri það og aðrir ekki.
Ágúst:
Æfingar með Jacob Melin
Gestakennarinn Jacob Melin verður með æfingar fyrir úrvalshópa. Jacob er landsliðsþjálfari karla í hópfimleikum í Svíþjóð. Jacob er kennari að mennt og starfar hjá GIH (The Swedish school of sport and health sciences). Þar er hann í mastersnámi sem hann er að útskrifast úr í vor. Jakob starfar einnig sem þjálfari karlaliðs Bromma og heldur námskeið fyrir Fimleikasamband Svíþjóðar í dýnu- og trampólínstökkum.
Tímasetning: 24. ágúst – 27. ágúst (fim-sun).
Innihald námskeiðs: Trampólín og hestur, styrktaræfingar og fleira í tengslum við trampólín og hest.
Dagskrá: Nánari dagskrá kemur síðar, en tvær æfingar verða fyrir úrvalshópa kvenna og karla.
Endurmenntun FSÍ: Æfingarnar eru líka hluti af endurmenntun á vegum FSÍ og verða því fleiri þjálfarar sem mæta á æfingarnar til að fylgjast með. Auk þess verða námskeið í hádeginu og námskeið í bland við æfingar á kvöldin frá kl. 18:00 alla dagana. Öllum iðkendum er boðið að sitja fyrirlestrana og eru þeir hvattir til þess. Skráning verður send út samhliða nánari dagskrá.
Lágmarkskröfur fyrir iðkendur:
Iðkendur þurfa að uppfylla lágmarkskröfur til að mega koma á æfinguna. Lágmarkskröfur verða sendar út í lok maí.
Gólfæfingar karla/blandaðs liðs:
Þar sem ekki er ljóst hvaða lið fer út, karlalið eða blandað lið, verða ekki teknar loka ákvarðanir um gólfæfingar fyrr en skýrist hvort liðið verður sent á mótið.
Æfingar fyrir landsliðshópa 2024
Landsliðshópar æfa saman frá tímabilinu júní – september, þegar landsliðin verða tilkynnt. Landsliðshópar verða endurskoðaðir í gegnum ferlið, eða þar til landslið verða tilkynnt.
Yfirþjálfarar
Yfirþjálfarar verkefnisins eru þau Björn Björnsson og Hrefna Þorbjörg Hákonardóttir, en þau eru meðal reyndustu þjálfara Íslands með feril sem skartar tveimur Evrópumeistaratitlum.
Áfram Ísland
#fyririsland
#fimleikarfyriralla
#islenskirfimleikar
Landsliðsþjálfarar


Björn Björnsson
Yfirþjálfari
Stökkáhöld
Hrefna Þorbjörg Hákonardóttir
Yfirþjálfari
Gólfæfingar
Fyrirkomulag karlaliða á Evrópumótum
Lokahópur samanstendur af tíu keppendum og tveimur varamönnum. Keppt er í undanúrslitum þar sem liðin freista þess að komast á lokamót. Einungis sex lið ná því og keppa um Evrópumeistaratitilinn
Úrslit Íslands á Evrópumótum í karlaflokki
Fyrsta Evrópumótið fór fram árið 1996. Mótið var félagsliðamót til ársins 2010 og mátti hvert land þá senda tvö lið til keppni.
2010 – Malmö, Svíþjóð – 4. sæti
2021 – Portugal – 3. sæti
2022 – Luxemborg – 4. sæti

Um næsta Evrópumót
Staðsetning
Baku, Azerbaijan
Dagsetning
16.-19. október 2024
Aldur
Unglingaflokkur 14-17 ára (fædd 2010-2007)
Fullorðinsflokkur 16 ára og eldri
Frekari upplýsingar
Koma síðar