Undanúrslitadagur tvö fór vel af stað í dag hér á Heimsbikarmótinu í Cottbus, fyrsta stopp í sterkustu mótaröð í heimi. Dagur Kári Ólafsson hóf keppni á svifránni, hann misreiknaði sig örlítið í flugæfingu og þar sem hver millimeter skiptir máli þá varð það til þess að hann greip ekki æfinguna. Dagur framkvæmdi flugæfinguna aftur með miklu öruggi og þá heppnaðist hún frábærlega, æfingin skilaði honum 11.766 stig og 25. sætinu.
Ágúst Ingi Davíðsson mætti heldur betur vel stemmdur til keppni í dag, hann gerði sér lítið fyrir og flaug beint inn í úrslitin sem fara fram á sunnudaginn, eini Norðurlandabúinn sem náði inn í úrslit. Ágúst Ingi framkvæmdi stórkostlega æfingu á tvíslánni sem skilaði honum 13.300 stigum og 8. sætinu sem dugir til úrslita. Að auki er hann varamaður á hringjunum í úrslitum á morgun.
Dagur Kári fibaði aðeins á tvíslánni sem varð til þess að hann datt, æfingin skilaði honum 11.400 stig og 19. sætinu. Hann hefur þá lokið keppni, en fer heim með mikilvæg stig á bogahestinum.
Dagskrá næstu daga
Laugardagurinn 21. febrúar
Kl 13:00 – 16:20 á íslenskum tíma
- Úrslit á gólfi, bogahesti og hringjum
- Ágúst Ingi er varamaður á hringjunum
Sunnudagurinn 22. febrúar
Kl 13:00 – 16:20 á íslenskum tíma
- Úrslit á stökki, tvíslá og svifrá
- Ágúst Ingi keppir til úrslita á tvíslánni
Beint streymi frá úrslitunum
Sýnt verður frá úrslitunum með beinu streymi, hvetjum við allt fimleikaáhugafólk til þess að horfa.
Beint streymi á úrslitin á laugardag.
Beint streymi á úrslitin á sunnudag.
Hér má finna úrslit dagsins.
Hér verða birtar myndir frá deginum.
Fimleikasamband Íslands óskar þeim Degi Kára og Ágústi Inga innilega til hamingju með árangurinn og Ágústi góðs gengis í úrslitunum á sunnudaginn.


