Lið ársins – Karlalandsliðið í áhaldafimleikum á Norður Evrópumóti
Íslenska karlalandsliðið í áhaldafimleikum átti frábæran dag á Norður Evrópumóti og gerði sér lítið fyrir vann til brons verðlauna. Liðið skrifaði þar með nafn sitt með í sögubækurnar, þar sem að karlalandslið í áhaldafimleikum hefur aldrei áður unnið til liðaverðlauna á Norður-Evrópumóti.
Liðið skipa þeir; Atli Snær Valgeirsson, Ágúst Ingi Davíðsson, Dagur Kári Ólafsson, Jónas Ingi Þórisson, Martin Bjarni Guðmundsson og Valgarð Reinhardsson, varamaður var Valdimar Matthíasson, allir æfa þeir í Gerplu. Þjálfarar liðsins eru Róbert Kristmannsson og Viktor Kristmannsson.
Mikil samheldni og vinátta einkennir liðið og þrátt fyrir mistök á tvíslá, sýndu þeir mikla þrautsegju og kláruðu seinustu tvö áhöldin með miklum glæsibrag. Ákveðni, fagmennska og metnaður lýsir liðinu vel og þessir eiginleikar eiga sinn þátt í að þeir uppskáru eins og þeir sáðu og sóttu sér draumaniðurstöðu, brons í liðakeppni.
Fimleikasamband Íslands er ákaflega stolt af liði ársins og óskar öllum þeim sem að liðinu koma innilega til hamingju með árangurinn á árinu.